Þegar þú gengur inn í eldhúsið logar glatt á arineldinum.
Þú nálgast eldinn hikandi.
Skyndilega opnast grámygluleg bók sem liggur á eldhúsborðinu fyrir framan eldinn.
Bókin opnast með skelli og rykið þyrlast upp.
Þú hóstar og pýrir augun til að sjá hvað stendur.

misc1-13.jpg (2144 bytes)

Þér tekst smám saman að stafa þig fram úr gömlu og máðu letrinu:
Uppskriftir...

Hananú! Þetta er þá uppskriftabók!
Hvað ætli draugar borði???
Viltu ekki prófa?

misc1-21.gif (24524 bytes)

Eða viltu aftur fara í anddyrið?

          

barani1-9.gif (5055 bytes)

 

Munið að þið þurfið alltaf að hafa foreldri eða eldra systkini
með ykkur þegar þið eruð í eldhúsinu!

 

Slímgel

Sítrónuhlaup (grænt Jello sem hægt er að kaupa úti í búð, grænt)
Hlauporma
Stórt glerform

Búðu til sítrónuhlaupið samkvæmt leiðbeiningunum á pakkanum. Búðu það til í stóru glerformi.
Hrærðu hlaupormunum við gelið meðan það er ennþá er ennþá heitt og kælið.
Þegar þið berið þetta fram, ekki skera gelið í bita. Taktu frekar stóra sleif og HLAMMAÐU gumsinu fyrir framan vini þína!

barani1-9.gif (5055 bytes)

Happy HalloweenOrmaklakar

Sprite
Hlaupormar

Helltu Sprite ofan í klakaform.
Settu ormana ofan í klakaformið, einn fyrir hvern klaka.
Frystu.

 

barani1-9.gif (5055 bytes)

Mýrarsull

MýrarvatniðAppelsínusafi
Blár matarlitur

 

 

Hellið bláum matarlit ofan í appelsínusafa þar til hann verður ógeðslega grænn. Drykkurinn er góður, en það tekur fólk LANGAN tíma til að uppgötva að það er að drekka bara venjulegan appelsínusafa!
Ef þið viljið virkilega skemmta ykkur, búið þið til dauðahendina hér fyrir neðanog látið hana fljóta í drykknum!

barani1-9.gif (5055 bytes)

green handDauðahendin

Hreinn plast- eða latexhanski (þvoið hann VEL og skolið)
Kirsuberjahlaup (eða eitthvað annað rautt Jello)

 

Búið til hlaupið samkvæmt leiðbeiningum. N notið samt aðeins 3/4 af því vatni sem mælt er með því að nota.
Bíðið þar til hlaupið hefur kólnað. Hellið hlaupinu ofan í hanskann (þið verðið að fá hjálp!).
Bindið fyrir hanskann með teygju eða bandi og setjið í frystinn. Passið ykkur að láta hanskann ekki kremjast, þar sem þá munu útlínu dauðahandarinnar eyðileggjast. Best er að reyna að hengja hanskann uppi í frystinum með því að nota fataklemmur!
Þegar hlaupið er frosið, klippið þá hanskann af með því að nota lítil skæri.
Geymið hendina í ísskápnum þar til hún er borin fram. Það er til dæmis skemmtilegt þegar höndin er sett ofan í gosbollu og flýtur fram og til baka þegar fólk reynir að fá sér drykk!
Þið getið einnig búið til venjulegan klaka með því að nota þessa aðferð. Þá hellið þið vatni ofan í hanskann og hengið hann upp í frystinn. Jafnvel getið þið sett matarlit ofan í vatnið svo að klakinn verður rauður eða grænn eða blár!!! 

barani1-9.gif (5055 bytes)

Fylltir sniglar

Stórar pastaskeljar
Ostur eða annað kjötálegg

Sjóðið pastaskeljarnar þangað til þær eru tilbúnar.
Setjið sneið af osti eða kjötbita inn í hverja skel og berið fram.
Voila! Fylltir sniglar!

barani1-9.gif (5055 bytes)

Rotin epli

Epli
Sulta 
Smjör
Hlaupormar

Hitið ofninn upp í 180°.
Takið eplin og skerið kjarnann úr þeim. Skiljið eftir botninn á eplinu (búið sem sagt til nokkurs konar eplaskál, með mjög grönnu gati).
Fyllið holuna í eplinu með einni teskeið af sultu og einni teskeið af smjöri.
Setjið fyllt eplin á bökunarplötu og bakið í 35-45 mínútur (stærri epli þurfa lengri tíma en minni!). Eplið er tilbúið þegar það er mjúkt. Það má samt ekki verða að mauki!!!
Þegar eplin eru tilbúin, takið þau út úr ofninum og látið þau kólna í 15 mínútur. Setjið svo einn hlauporm ofan í hverja holu og látið að minnsta kosti helming af líkama ormsins vera sjáanlegan!

barani1-9.gif (5055 bytes)

Köngulóarkaka

Þessi hérna er dálítið flókin, svo þið ættuð að fá mömmu eða pabba til að hjálpa ykkur!

spider1-3.gif (14422 bytes)(Þegar kakan er skorin, þá sprautast grænt slím út úr köngulónni!)

Deig
Einn pakki af hvítu kökudufti (eða tveir svampbotnar)
4 pakkar af grænu hlaupi (Jello)

Kökukrem
Blár matarlitur
Súkkulaðikökukrem

Skreytingar
4 lakkrísreimar
2 stór, græn, kringlótt hlaup
6 lítil kringlótt hlaup

Hrærið deigið eftir leiðbeiningum. Takið til tvö 9 tommu kringlótt bökunarform og hellið deiginu í. Bakið kökuna og kælið.
Búið til hlaupið samkvæmt leiðbeiningum. Hlaupið má ekki vera of hart!
Setjið álpappír á bökunarplötu og setjið einn kökubotninn á plötuna. Þetta er líkaminn á köngulónni. Skerðu smærri hring út úr þessum botni og notaðu það sem höfuðið á köngulónni. Fyllið holunna í stærri botninum með hlaupinu. Setjið hinn kökubotninn ofan á kökubotninn og hlaupið. Snyrtið.
Takið súkkulaðikremið og setjið í skál. Bætið við bláum matarlit þangað til kremið er orðið svart. Setjið svarta kremið á alla kökuna þar til hún er orðin svört. Skerið lakkrísreimarnar í tvennt og setjið í kringum líkamann þar til köngulóin hefur átta fótleggi. Setjið stóru hlaupin sem augu og litlu hlaupin sem doppur á líkamann!

barani1-9.gif (5055 bytes)

Aftur upp                Aftur í anddyrið